Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 234  —  162. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni
um kynferðisbrot á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2015.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margar tilkynningar um kynferðisbrot annars vegar og kærur vegna kynferðisbrota hins vegar bárust lögregluyfirvöldum í tengslum við þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2015?

    Í tilefni af fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir umsögn embættis lögreglustjórans í Vestmannaeyjum. Í umsögn embættisins, dags. 30. september 2015, kemur fram að til lögregluyfirvalda voru tilkynnt fimm kynferðisbrot sem áttu sér stað í umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum á tímabilinu 30. júlí til 3. ágúst 2015. Í umsögninni er enn fremur eftirfarandi listi yfir þau brot sem tilkynnt var um, hvenær þau áttu sér stað og hvar og hvenær þau voru kærð eða tilkynnt:
    31. júlí:    Kynferðisbrot, nauðgun, misneyting, kært 6. ágúst hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
    1. ágúst:    Kynferðisbrot, nauðgun, tilkynnt 2. ágúst hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum.
    1. ágúst:    Kynferðisbrot, blygðunarsemi, kært 5. ágúst hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi.
    1. ágúst:    Kynferðisbrot, kynferðisleg áreitni, kært 4. ágúst hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum.
    2. ágúst:    Kynferðisbrot, nauðgun, kært 2. ágúst hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum.