Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 278  —  256. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um kostnað við hönnun á nýjum Herjólfi.

Frá Ásmundi Friðrikssyni.


     1.      Hversu hár er kostnaður við hönnun á nýjum Herjólfi orðinn?
     2.      Hver er kostnaður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunarinnar?
     3.      Hver er kostnaður við líkanprófanir í tanki erlendis?
     4.      Hver er áætlaður viðbótarkostnaður vegna lengingar ferjunnar um 4,2 metra og tankprófana á stærri ferju?
     5.      Hversu hár var hönnunarkostnaður nýrrar ferju upphaflega áætlaður?


Skriflegt svar óskast.