Ferill 291. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 320  —  291. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um kostnað við ljósleiðaravæðingu landsins.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.


     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður, sundurliðaður eftir landshlutum, við ljósleiðaravæðingu landsins alls ef öll sveitarfélög landsins verða tengd ljósleiðara þannig að þau geti lagt hann að hverju heimili og fyrirtæki?
     2.      Er til tímasett áætlun um aðkomu ríkisvaldsins að ljósleiðaravæðingu landsins alls?
     3.      Standa yfir viðræður við sveitarfélögin um ljósleiðaravæðingu?


Skriflegt svar óskast.