Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 321 — 292. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um framtíð ART-verkefnisins.
Frá Björgvini G. Sigurðssyni.
1. Hvað líður samningi velferðarráðuneytisins við sveitarfélög á Suðurlandi um framhald ART-verkefnisins?
2. Standa yfir viðræður um samning og hvenær er gert ráð fyrir að þeim ljúki?
3. Hver eru áætluð framlög til verkefnisins og lengd samnings um það?
Skriflegt svar óskast.