Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 403 — 336. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um rannsóknir, ákærur og dóma vegna
kynferðisbrota gegn fötluðu fólki.
Frá Katrínu Júlíusdóttur.
1. Hversu mörg mál hafa komið inn á borð lögreglu vegna kynferðisbrota gegn fötluðu fólki?
2. Í hversu mörgum slíkum málum hefur verið ákært og mál farið fyrir dóm og í hve mörgum þeirra hefur verið sakfellt og í hve mörgum sýknað?
Svarið óskast sundurliðað eftir árum á árabilinu 1970–2015 og kynferði.
Skriflegt svar óskast.