Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 480  —  256. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni
    um kostnað við hönnun á nýjum Herjólfi.

     1.      Hversu hár er kostnaður við hönnun á nýjum Herjólfi orðinn?
    Í lok september 2015 nam kostnaður 147.083.890 kr.

     2.      Hver er kostnaður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunarinnar?
    Kostnaður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunar nam 136.790.328 kr., að vatnslíkanprófunum og gerð útboðsgagna meðtöldum.
            
     3.      Hver er kostnaður við líkanprófanir í tanki erlendis?
    Kostnaður vegna vatnslíkanprófana erlendis nam 139.200 evrum (€) og var greitt fyrir þá vinnu 21.492.480 kr.
            
     4.      Hver er áætlaður viðbótarkostnaður vegna lengingar ferjunnar um 4,2 metra og tankprófana á stærri ferju?
    Mat ráðgjafa Vegagerðarinnar er að viðbótarkostnaðurinn sé óverulegur, þ.e. innan við 2–4%, þar sem fyrst og fremst er um aukið stálmagn að ræða. Tilboð norska fyrirtækisins Polarkonsult í viðbótartankprófanir nemur 64.900 evrum eða um 9,4 millj. kr.

     5.      Hversu hár var hönnunarkostnaður nýrrar ferju upphaflega áætlaður?
    Algengt er að smíði og hönnun sé boðin út saman. Miðað er við að hönnunarkostnaður ferju af þessari stærðargráðu geti numið allt að 15% af heildarkostnaði. Ákveðið var að skipta verkefninu upp og bjóða út fyrsta hluta hönnunar sérstaklega. Áætlaður hönnunarkostnaður var 800.000 evrur (um 116 millj. kr.), þar af voru áætlaðar 300.000 evrur (44 millj. kr.) í prófanir og hermanir. Undanskilið í hönnunarkostnaði var eftirlit með hönnun, ráðgjöf við vinnuhóp, þátttaka í hermun, frekari prófanir o.fl.