Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 580 — 412. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um skáldahúsin á Akureyri.
Frá Brynhildi Pétursdóttur.
1. Hvers vegna fá skáldahúsin þrjú á Akureyri, Davíðshús, Nonnahús og Sigurhæðir, enga rekstrarstyrki frá ríkinu og hafa ekki fengið a.m.k. frá árinu 2012?
2. Telur ráðherra að jafnræðis sé gætt þegar kemur að úthlutun ríkisfjár til höfundasafna á landinu?
3. Hvernig hefur ráðherra gætt jafnræðis skáldahúsanna þriggja og annarra sambærilegra menningarstaða á landsbyggðinni?
Skriflegt svar óskast.