Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 626  —  427. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um störf nefndar um málefni hinsegin fólks.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


    Hvað hefur tafið störf nefndar um málefni hinsegin fólks sem skipuð var 30. apríl 2014 og átti að skila niðurstöðum 1. október sama ár og hvenær er von á niðurstöðum hennar?