Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 710, 145. löggjafarþing 398. mál: málefni aldraðra o.fl. (samningar sjúkratryggingastofnunar við stofnanir fyrir aldraða).
Lög nr. 130 28. desember 2015.
I. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.
Þrátt fyrir ákvæði 2. tölul. 1. mgr. er heimilt að samþykkja dvöl einstaklinga sem eru yngri en 67 ára á hjúkrunarheimilum og í hjúkrunarrýmum stofnana fyrir aldraða enda hafi þeir verið metnir í þörf fyrir dvöl skv. 15. gr. Um greiðsluþátttöku þeirra fer samkvæmt lögum þessum.
Ráðherra ákveður með reglugerð hámark greiðsluþátttöku heimilismanns í dvalarkostnaði á stofnun, óháð því hvort stofnunin er á föstum fjárlögum eða ekki. Greiðsluþátttaka skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en nemur umsömdum dvalarkostnaði. Lög um sjúkratryggingar gilda þegar ekki liggja fyrir samningar um þjónustu í rýmum fyrir aldraða.
II. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum.
Þjónusta í rýmum fyrir aldraða.
Sjúkratrygging tekur til þjónustu sem veitt er í rýmum fyrir aldraða. Skilyrði er að mat á þörf sjúkratryggðs fyrir þjónustuna hafi farið fram samkvæmt lögum um málefni aldraðra.
Þingskjal 710, 145. löggjafarþing 398. mál: málefni aldraðra o.fl. (samningar sjúkratryggingastofnunar við stofnanir fyrir aldraða).
Lög nr. 130 28. desember 2015.
Lög um breytingu á lögum um málefni aldraðra, lögum um almannatryggingar og lögum um sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar við stofnanir fyrir aldraða).
1. gr.
3. mgr. 14. gr. laganna orðast svo:Þrátt fyrir ákvæði 2. tölul. 1. mgr. er heimilt að samþykkja dvöl einstaklinga sem eru yngri en 67 ára á hjúkrunarheimilum og í hjúkrunarrýmum stofnana fyrir aldraða enda hafi þeir verið metnir í þörf fyrir dvöl skv. 15. gr. Um greiðsluþátttöku þeirra fer samkvæmt lögum þessum.
2. gr.
Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 19. gr. laganna kemur: sjúkratryggingastofnun.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:- 2. og 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Hafi heimilismaður engar tekjur, sbr. 26. gr., skal sjúkratryggingastofnun greiða dvalarheimilinu dvalarframlag til greiðslu dvalarkostnaðar hans á stofnuninni. Dvalarframlagið skal nema hámarki dvalarkostnaðar sem um er samið skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sbr. þó 22. gr. laga þessara.
- Í stað orðanna „það er ákveðið af ráðherra hverju sinni, sbr. 6. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar“ í 3. mgr. kemur: samið hefur verið um skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:- Í stað „34.659 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. tölul. 2. mgr. kemur: 74.696 kr.
- Í stað orðanna „þau eru ákveðin af ráðherra, sbr. 6. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og 3. mgr. 23. gr. laga þessara“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: samið hefur verið um skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sbr. þó 24. gr. laga þessara.
- 2. tölul. 2. mgr. orðast svo: Ef tekjur heimilismanns á dvalar- eða hjúkrunarheimili ná ekki 74.696 kr. á mánuði greiðir sjúkratryggingastofnun dvalarkostnað hans.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:- Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ tvívegis í 1. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnun.
- Orðin „sbr. 3. mgr.“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
- 3. mgr. fellur brott.
6. gr.
24. gr. laganna, með áorðnum breytingum, sbr. 25. gr. laga nr. 88/2015, orðast svo:Ráðherra ákveður með reglugerð hámark greiðsluþátttöku heimilismanns í dvalarkostnaði á stofnun, óháð því hvort stofnunin er á föstum fjárlögum eða ekki. Greiðsluþátttaka skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en nemur umsömdum dvalarkostnaði. Lög um sjúkratryggingar gilda þegar ekki liggja fyrir samningar um þjónustu í rýmum fyrir aldraða.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna, með áorðnum breytingum, sbr. 25. gr. laga nr. 88/2015:- Í stað orðanna „og greiðir“ í 3. mgr. kemur: en sjúkratryggingastofnun greiðir.
- Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ og „Tryggingastofnun“ í 1. málsl. 8. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnun.
- Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 11. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnun.
8. gr.
Orðið „dvalarframlag“ í 3. gr. laganna, með áorðnum breytingum, sbr. 1. gr. laga nr. 88/2015, fellur brott.9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:- 6. mgr. fellur brott.
- Orðin „og 6.“ í 7. mgr. falla brott.
10. gr.
24. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:11. gr.
Við lokamálsgrein 29. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Um gjaldtöku af heimilismanni fyrir þjónustu í dvalar- og hjúkrunarrýmum, svo og í dagdvöl, fer samkvæmt lögum um málefni aldraðra.12. gr.
Við 1. mgr. 38. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Séu samningar um þjónustu í rýmum fyrir aldraða ekki fyrir hendi, sbr. IV. kafla, er einnig í sérstökum tilfellum heimilt að greiða stofnunum kostnað vegna þjónustu tímabundið á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofnun gefur út.13. gr.
Við 1. mgr. 39. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá annast stofnunin einnig samningsgerð um veitingu þjónustu í rýmum fyrir aldraða og um endurgjald ríkisins vegna hennar.14. gr.
Í stað orðsins „hjúkrunarrýmum“ í 4. mgr. 43. gr. laganna kemur: rýmum fyrir aldraða.15. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2016. Þó skal 2. málsl. 1. gr. einungis gilda um þá sem hefja dvöl á hjúkrunarheimilum og í hjúkrunarrýmum stofnana fyrir aldraða eftir gildistöku laga þessara.Samþykkt á Alþingi 19. desember 2015.