Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 733  —  413. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá
Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um húðflúrun.


     1.      Hvaða lög gilda um starfsemi húðflúrstofa og eftirlit með þeim?
    Lög nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og reglugerð nr. 941/2002, um hollustuhætti, gilda um starfsemi húðflúrstofa. Samkvæmt 12. tölul. 4. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir setur ráðherra í reglugerð almenn ákvæði um húðflúrstofur. Í samræmi við fylgiskjal III með lögunum gefa heilbrigðisnefndir sveitarfélaga út starfsleyfi fyrir húðflúrstofur, sbr. 4. gr. a laganna, og hafa eftirlit með starfsemi þeirra.

     2.      Eru einhver skilyrði fyrir notkun á búnaði sem er notaður við húðflúrun?
    Já, í gildi eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir líkamsgötun, þar með talið húðflúr (sjá www.ust.is/library/Skrar/Atvinnulif/Starfsleyfi/Samraemd-starfsleyfisskilyrdi/ Starfsleyfisskilyrdi_fyrir_likamsgotun,_endurskodad_7._05.2008.pdf). Í starfsleyfi húðflúrstofa er kveðið á um að starfsleyfishafi þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði sem taka á hollustuháttum í starfseminni. Í skilyrðunum er m.a. að finna ákvæði er varðar húsnæði og búnað, hreinlæti, sóttvarnir, upplýsingar til viðskiptavina og forráðamanna, samþykki viðskiptavina og umhverfismál.
    Varðandi notkun og meðhöndlun efna ber að fara eftir efnalögum, nr. 61/2013, og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Þá má benda á að samkvæmt 1. mgr. 7. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, er hverjum manni skylt að gera sér allt far um að sýkja hvorki sjálfan sig né aðra.

     3.      Hversu margar húðflúrstofur eru með starfsleyfi?
    Umhverfisstofnun leitaði til heilbrigðisnefnda sveitarfélaga og samkvæmt upplýsingum frá þeim eru 16 húðflúrstofur hér á landi með starfsleyfi.

     4.      Er haldin skrá yfir tilvik í heilbrigðiskerfinu sem rekja má til húðflúrunar?
    Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis eru tilvik ekki skráð sérstaklega, nema ef tilfelli mundi falla undir skilgreiningu tilkynningarskylds ástands, samkvæmt reglugerð nr. 221/2012, um skýrslugerð vegna sóttvarna.

     5.      Hefur ráðherra kynnt sér löggjöf annarra Norðurlanda um húðflúrun?
    Nei, ráðherra hefur ekki kynnt sér löggjöf annarra Norðurlanda um húðflúrun

     6.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir setningu reglna um starfsemi húðflúrstofa?
    Að mati ráðherra eru reglur á sviði hollustuhátta varðandi starfsemi húðflúrstofa nægjanlegar hvað varðar hollustuvernd og virkt eftirlit heilbrigðisnefnda. Mikilvægt er þó að vinna betur að fræðslu um þessi mál og styrkja samvinnu milli þeirra aðila sem koma að starfsemi húðflúrstofa. Umhverfisstofnun hefur áhuga á að halda fræðsludag fyrir aðila með starfsleyfi til að framkvæma húðflúrun, varanlega förðun með húðflúrun og ísetningu eyrnalokka og álíka skarts og þá sem hafa hug á að hefja slíka starfsemi, farið hafa fram viðræður milli Umhverfisstofnunar, embættis landslæknis og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga í kjölfar tillögu frá embætti landlæknis um þetta. Embætti landlæknis hefur einnig staðið fyrir fræðslu til einstakra aðila um smithættu sem getur stafað af húðflúri, líkamsgötun og skyldri starfsemi og þær aðferðir sem skal beita við að hreinsa, sótthreinsa og dauðhreinsa áhöld og búnað. Veitt er fræðsla um nauðsynlegar sóttvarnir við húðgötun og húðflúr og farið yfir opinberar reglur og starfsleyfisskilyrði í þessum efnum. Fræðslan tekur um einn klukkutíma og er hún veitt án endurgjalds. Þeir sem fá þessa fræðslu undirrita í lok hennar yfirlýsingu þar sem þeir skuldbinda sig til að fara í einu og öllu eftir reglum og leiðbeiningum heilbrigðisnefndar á viðkomandi starfssvæði og landlæknisembættis um húðflúr, húðgötun og skylda starfsemi. Þeir sem sótt hafa þessa fræðslu eru einkum húðflúrarar og gatarar en einnig snyrtifræðingar og nálarstungumeðferðaraðilar. Fjöldi einstaklinga sem hafa fengið þessa fræðslu eru um 120 síðastliðin 15 ár.
    Embætti landlæknis telur þörf á frekari fræðslu, þar sem fulltrúar frá embætti landlæknis, Umhverfisstofnun og heilbrigðisnefndum sveitarfélaga koma og fræða og fara yfir allar hliðar málsins, svo sem sýkingarhættu, sótthreinsun og dauðhreinsun, hvað beri að varast og einnig lög og reglur, starfsleyfisskilyrði og eftirlit. Umhverfisstofnun mun taka málið upp aftur í kjölfar þessarar fyrirspurnar. Stofnunin hefur einnig í hyggju að óska eftir viðræðum við embætti landlæknis til að meta hvort þörf er fyrir samræmda fræðslu og hvort eðlilegra sé að eftirlitsaðili sinni fræðslu og forvarnahlutverki vegna slíkrar starfsemi.

     7.      Hefur ráðherra í hyggju að leggja til að starfsheiti húðflúrara verði löggilt?
    Nei, ráðherra hefur ekki í hyggju að leggja til að starfsheiti húðflúrara verði löggilt.