Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 751 — 468. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um innleiðingu nýrra náttúruverndarlaga.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hvað líður innleiðingu nýrra náttúruverndarlaga, nr. 60/2013?
2. Hver eru áhrif laganna á einstakar stofnanir ráðuneytisins, verksvið þeirra og viðfangsefni?
3. Hvað líður kynningu á þeim breytingum sem lögin hafa í för með sér fyrir sveitarfélög og skipulagsferla, ferðaþjónustufyrirtæki, ferðafélög og allan almenning?