Ferill 487. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 777 — 487. mál.
Leiðréttur texti.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um leiguleið til uppbyggingar hjúkrunarheimila.
Frá Vigdísi Hauksdóttur.
1. Hvað felst í svokallaðri leiguleið til uppbyggingar hjúkrunarheimila sem ríkið samdi um við sveitarfélögin á síðasta kjörtímabili, við hversu mörg sveitarfélög var gerður samningur og til hversu margra ára var samið?
2. Vinnur ráðuneytið enn eftir þeirri stefnu?
3. Hver er áætlaður kostnaður ríkisins samtals á samningstímanum og hvað leggja sveitarfélögin fram mikið fjármagn á móti ríkinu?
4. Hvernig er eignarhaldinu háttað í leiguleiðinni?
Skriflegt svar óskast.