Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 864  —  544. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um stefnu ríkisstjórnarinnar
um NPA-þjónustu við fatlaða einstaklinga.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.


1.      Er svigrúm innan fjárlagaársins 2016 til að fjölga NPA-samningum til að mæta þjónustuþörf við fatlað fólk þegar hefðbundin úrræði duga ekki?
2.      Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um framhald þróunar og innleiðingar NPA?
3.      Gerir ríkisstjórnin ráð fyrir innleiðingu NPA í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017?
4.      Hvað mætti ætla að margir NPA-samningar kæmust á í kjölfar lagasetningar fyrir árið 2017 annars vegar og hins vegar árið 2018?
5.      Hversu mikið er áætlað að NPA-samningum fjölgi ef lagasetning tryggir að NPA verði lögvarinn valkostur og réttur fatlaðs fólks?


Skriflegt svar óskast.