Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 884  —  548. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um framhaldsskóladeild á Vopnafirði.

Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að staðið verði við áform um að opna framhaldsskóladeild frá Framhaldsskólanum á Laugum á Vopnafirði haustið 2016 og lagt verði fram nauðsynlegt fé til stofnunar og rekstrar þessarar starfsemi?
     2.      Verði deildin opnuð, hvað er stefnt að því að starfrækja hana lengi?
     3.      Hvaða áhrif hefði starfsemi deildarinnar á fjölda nemendaígilda Framhaldsskólans á Laugum?