Ferill 569. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 929  —  569. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um flugvelli og framkvæmdir.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hversu mikið fé var veitt til flugvalla í fjárlögum fyrir árið 2016? En í fjárlögum fyrir árið 2015? Svar óskast sundurliðað eftir flugvöllum.
     2.      Í hvað hefur það fé verið notað, sundurliðað eftir flugvöllum?
     3.      Hvaða framkvæmdum er lokið, við hvaða framkvæmdir er enn unnið og hverjar bíða, sundurliðað eftir flugvöllum?
     4.      Hversu margir flugvellir hafa verið mjókkaðir eða stendur til að mjókka með fyrirhuguðum framkvæmdum?


Skriflegt svar óskast.