Ferill 603. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 983 — 603. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um túlkun á fríverslunarsamningi EFTA og Marokkós.
Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.
Er utanríkisráðherra sammála þeirri túlkun norskra og svissneskra stjórnvalda á fríverslunarsamningi EFTA og Marokkós frá árinu 1997 að hann nái ekki til varnings frá hernumdu landsvæði Vestur-Sahara?