Ferill 554. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 991  —  554. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur um embættismenn.


     1.      Hver er heildarfjöldi embættismanna sem starfa hjá velferðarráðuneytinu og stofnunum þess?
    Hjá ráðuneytinu starfa átta embættismenn og 26 hjá stofnunum þess. Heildarfjöldinn er því 34.

     2.      Skipan hve margra þeirra rennur út á þessu ári og skipan hve margra á ári hverju 2017–2020?
    Á árunum 2016–2020 rennur skipunartími embættismanna út eins og sjá má í eftirfarandi töflu:
2016 2017 2018 2019 2020
3 3 8 7 9

     3.      Hve margir embættismenn eru á þessu ári 60–64 ára, 65–66 ára og 67–69 ára og hve margir verða 70 ára á næsta ári?
    Á þessu ári er aldursdreifing eftirfarandi: 60–64 ára eru átta, 65–66 ára eru þrír, 67–69 ára eru fimm og einn verður 70 ára á næsta ári.

     4.      Hve margir embættismenn starfa sem skrifstofustjórar innan ráðuneytisins án mannaforráða?
    Einn.