Ferill 614. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1016  —  614. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um byggingu nýs Landspítala.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.


     1.      Hvað vakir fyrir ráðherra með endurteknum yfirlýsingum um að til greina komi að nýr Landspítali rísi annars staðar en við Hringbraut í Reykjavík þó svo að undirbúningur þar sé í fullum gangi og framkvæmdir þegar hafnar, með byggingu sjúkrahótels og byggingu fyrir jáeindaskanna?
     2.      Hversu lengi telur ráðherra að bygging nýs Landspítala mundi tefjast yrði hætt við núverandi byggingaráform og leit hafin að öðrum stað fyrir sjúkrahúsið?
     3.      Hefur ráðherra látið meta líklegan byggingarkostnað nýs sjúkrahúss á annarri lóð en Hringbrautarlóðinni og hversu mikill munur væri á kostnaði við slíka nýbyggingu og byggingu sem risi við Hringbraut og tengdist húsum sem þar eru fyrir og nýtast áfram?
     4.      Hefur ráðherra augastað á fleiri stöðum sem líklegum Landspítalalóðum en Vífilsstöðum og lóð útvarpshússins við Efstaleiti í Reykjavík sem hann hefur nefnt í þessu sambandi?


Skriflegt svar óskast.