Ferill 704. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1144 — 704. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um flutning verkefna til sýslumannsembætta.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvernig miðar framkvæmd aðgerðaáætlunar um flutning verkefna til embætta sýslumanna sem gerð var samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 50/2014? Telur ráðherra að markmið áætlunarinnar hafi náðst?
2. Hyggst ráðherra brydda upp á nýjum verkefnum sem sinnt verður af sýslumannsembættum eða stuðla að því með öðrum hætti að sýslumannsembættin fái víðtækari og styrkari verkefnagrundvöll?
Skriflegt svar óskast.