Ferill 743. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 1220 — 743. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um lestarsamgöngur.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
1. Hvernig stendur vinna við athugun á hagkvæmni lestarsamgangna milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur annars vegar og léttlestakerfis á höfuðborgarsvæðinu hins vegar? Mun niðurstaðan liggja fyrir fyrir mitt ár 2016 eins og samþykkt var á Alþingi 1. júlí 2015, sbr. þingsályktun nr. 19/144?
2. Hver hefur aðkoma sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verið að vinnunni?
3. Verður niðurstöðunnar getið í samgönguáætlun?
Skriflegt svar óskast.