Ferill 744. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1221 — 744. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um rannsókn á mánaðartekjum háskólanema.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
Hvernig hyggst ráðherra bregðast við niðurstöðum rannsóknar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um að mánaðartekjur nema við Háskóla Íslands hafi lækkað um 30% að raungildi á síðustu tíu árum?