Ferill 754. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1254 — 754. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um Grænlandssjóð.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
1. Hyggst ráðherra leggja fram og freista samþykktar á frumvarpi um breytingu á lögum um Grænlandssjóð áður en kjörtímabili sleppir?
2. Hversu mikið fé er í Grænlandssjóði, hvar og hvernig er það ávaxtað og hversu miklu fé hefur verið úthlutað á kjörtímabilinu úr sjóðnum?