Ferill 722. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1312  —  722. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfússyni um byggingu nýs Landspítala.


     1.      Hvar álítur ráherra heppilegast að nýr Landspítali rísi og hvaða forsendur eru einkum fyrir þeirri afstöðu?
    Fyrir liggur stefnumörkun Alþingis um endurnýjun og uppbyggingu Landspítala, sbr. þingsályktun nr. 45/143. Unnið er samkvæmt þeirri stefnumörkun.

     2.      Telji ráðherra koma til greina að reisa nýjan Landspítala annars staðar en við Hringbraut, sbr. viðhorf forvera hans í starfi forsætisráðherra, um hvaða staðsetningu væri þá að ræða og með hvaða rökum?
    Það væri að mati ráðherra mjög álitlegt að byggja nýjan Landspítala annars staðar, t.d. á Vífilsstöðum.