Ferill 615. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 1326 — 615. mál.
Flutningsmaður.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um dómstóla.
Frá Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Helga Hrafni Gunnarssyni og Guðmundi Steingrímssyni.
1. Í stað orðsins „dómstólasýslunnar“ í 2. mgr. 3. gr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í frumvarpinu komi, í viðeigandi beygingarfalli: dómsýslan.
2. 2. málsl. 2. mgr. 12. gr. orðist svo: Frá þessu má þó víkja ef Alþingi samþykkir með tveimur þriðju hlutum greiddra atkvæða tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda sem fullnægir að mati dómnefndar öllum skilyrðum til að hljóta skipun í embættið.