Ferill 834. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1570 — 834. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um íslenska fanga erlendis.
Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.
1. Hversu margir íslenskir ríkisborgarar eru í erlendum fangelsum?
2. Hefur ráðuneytið komið einhverjum þeirra til aðstoðar og þá hvernig?
3. Hafa einhverjir íslenskir fangar erlendis verið fluttir til Íslands áður en afplánun lauk?
Skriflegt svar óskast.