Ferill 880. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1707  —  880. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um áhrif afnáms almenns vörugjalds og tolla á tekjur ríkisins.

Frá Birgi Ármannssyni.


     1.      Hver eru áætluð áhrif niðurfellingar almenns vörugjalds á vörur í 600 tollskrárnúmerum frá 1. janúar 2015 á tekjur ríkisins?
     2.      Hver eru áætluð áhrif niðurfellingar tolla á vörur í 320 tollskrárnúmerum frá 1. janúar 2016 á tekjur ríkisins?
     3.      Hver eru áætluð áhrif niðurfellingar tolla á vörur í 1.250 tollskrárnúmerum frá 1. janúar 2017 á tekjur ríkisins?
    Svarið óskast sundurliðað eftir árum og auk beinnar tekjulækkunar verði hliðaráhrif á virðisaukaskatt metin.


Skriflegt svar óskast.