Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1821, 145. löggjafarþing 893. mál: útlendingar (frestun réttaráhrifa).
Lög nr. 106 19. október 2016.
Þrátt fyrir ákvæði 3. og 4. mgr. 32. gr. frestar kæra á ákvörðun Útlendingastofnunar um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar í þeim tilvikum sem falla undir d-lið 1. mgr. 32. gr. Ákvæði þetta gildir til 1. janúar 2017.
Þingskjal 1821, 145. löggjafarþing 893. mál: útlendingar (frestun réttaráhrifa).
Lög nr. 106 19. október 2016.
Lög um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum (frestun réttaráhrifa).
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:Þrátt fyrir ákvæði 3. og 4. mgr. 32. gr. frestar kæra á ákvörðun Útlendingastofnunar um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar í þeim tilvikum sem falla undir d-lið 1. mgr. 32. gr. Ákvæði þetta gildir til 1. janúar 2017.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. október 2016.