Ferill 34. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 91  —  34. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um fjölda lífeyrisþega sem fá skertar greiðslur vegna búsetu erlendis.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Hversu margir lífeyrisþegar fengu á árunum 2010–2016 skertar greiðslur almannatrygginga vegna fyrri búsetu erlendis? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega (elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega).
     2.      Hversu margir þessara lífeyrisþega voru búsettir annars vegar í ríkjum innan EES og hins vegar í ríkjum utan EES fyrir flutninginn til Íslands? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     3.      Hversu margir þessara lífeyrisþega fá engar lífeyrisgreiðslur frá almannatryggingum í fyrra búsetulandi. Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     4.      Hversu stórt hlutfall þessara lífeyrisþega fær ekki greiðslur frá fyrra búsetulandi, þrátt fyrir að milliríkjasamningur sé í gildi milli Íslands og fyrra búsetulands? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     5.      Hversu margir lífeyrisþegar, sem sótt hafa um lífeyri frá öðru EES-ríki, hafa fengið synjun um örorkulífeyri frá fyrra búsetulandi? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     6.      Hversu margir lífeyrisþegar skv. 1. tölul. fyrirspurnarinnar féllu í eftirtalda tekjuflokka á árunum 2010–2016 (skattskyldar tekjur í nóvember ár hvert) sem miðast við allar skattskyldar tekjur:
        0–79.999 kr.,
        80.000–99.999 kr.,
        100.000–129.999 kr.,
        130.000–149.999 kr.,
        150.000–169.999 kr.,
        170.000–189.999 kr.,
        190.000–209.999 kr.,
        210.000 kr. eða hærri? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     7.      Hversu margir lífeyrisþegar voru ár hvert með heildartekjur undir framfærsluviðmiði án heimilisuppbótar skv. 2. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, þ.e.:
        lægri en 174.946 kr. árið 2012,
        lægri en 181.769 kr. árið 2013,
        lægri en 188.313 kr. árið 2014,
        lægri en 193.962 kr. árið 2015,
        lægri en 212.776 kr. árið 2016? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.


Skriflegt svar óskast.