Ferill 48. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.
Þingskjal 105 — 48. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fjölda starfsmanna Stjórnarráðsins.
Frá Óla Birni Kárasyni.
1. Hver hefur þróun á fjölda starfsmanna Stjórnarráðsins og fjölda ársverka verið frá árinu 1990? Svarið óskast sundurliðað eftir árum.
2. Hver var fjöldi ráðuneytisstjóra í árslok 1990, 1995, 2000, 2005, 2010 og 2015?
3. Hver var fjöldi skrifstofustjóra í ráðuneytum í árslok 1990, 1995, 2000, 2005, 2010 og 2015?
Skriflegt svar óskast.