Ferill 53. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.

Þingskjal 110  —  53. mál.
Munnlegt svar.


                   

Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um viðræður um bann við kjarnorkuvopnum.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Mun Ísland senda fulltrúa til þátttöku í viðræðum um samning um bann við kjarnorkuvopnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna 27. til 31. mars nk.?
     2.      Hverjar eru væntingar ráðherra til viðræðnanna?