Ferill 54. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 111  —  54. mál.



                                  

Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um meðferð kynferðisbrota.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.

                                  
     1.      Hvenær er ráðgert að samráðshópur um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins, sem innanríkisráðherra skipaði í mars 2016, ljúki störfum og skili lokaskýrslu?
     2.      Hvaða aðgerðir, sem byggðar eru á fyrstu tillögum samráðshópsins frá því í júní sl., eru komnar til framkvæmda?
     3.      Er innan ráðuneytisins unnið að tillögum um að breyta réttarstöðu brotaþola í kynferðisbrotamálum til samræmis því sem tíðkast í grannríkjum á borð við Noreg, Svíþjóð og Finnland?


Skriflegt svar óskast.