Ferill 73. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 130 — 73. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um framsal íslenskra fanga.
Frá Eygló Harðardóttur.
Er unnið að því að koma á framsali íslenskra fanga erlendis til afplánunar á Íslandi án þess að fyrir liggi sérstakur framsals- eða fangaflutningasamningur við viðkomandi land?