Ferill 94. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 153  —  94. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um umsóknarferli hjá sýslumönnum.

Frá Eygló Harðardóttur.


     1.      Af hverju þarf að skila inn ljósmynd og umsókn á pappír þegar sótt er um ökuskírteini hjá sýslumanni en ekki þegar sótt er um vegabréf á sama stað?
     2.      Hvaða áform hefur ráðherra um að einfalda og tæknivæða umsóknarferli hjá sýslumönnum?


Skriflegt svar óskast.