Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 220  —  153. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um viðhald vegakerfisins.

Frá Viktori Orra Valgarðssyni.


     1.      Hefur Vegagerðin skýr markmið um viðhald vegakerfisins þar sem t.d. hefur verið metin þörf á viðhaldi vega og brúa innan sem utan þéttbýlis?
     2.      Hefur Vegagerðin látið reikna út hversu mikið fé þarf til slíks viðhalds:
                  a.      næstu 5 ár,
                  b.      næstu 10 ár,
                  c.      næstu 40 ár?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja fjármögnun viðhalds skv. 2. lið?


Skriflegt svar óskast.