Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 295  —  211. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um kærur um kynferðisbrot.

Frá Eygló Harðardóttur.


     1.      Hversu margar tilkynningar og kærur bárust til lögreglu um kynferðisbrot síðustu tíu ár?
     2.      Hversu margar kærur um kynferðisbrot leiddu til ákæru vegna brota gegn ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, á sömu árum?
     3.      Hversu margar ákæranna leiddu til sakfellingar, hversu margar til sýknu og hversu mörgum var vísað frá dómi?


Skriflegt svar óskast.