Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.

Þingskjal 509  —  380. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um greiningu á þensluáhrifum fjárfestinga og framkvæmda.

Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.


    Er hafin eða áformuð greining á áhrifum „mismunandi fjárfestinga og framkvæmda í einstökum greinum sem og þensluáhrif á landsbyggðina annars vegar og höfuðborgarsvæðið hins vegar“ sem fram kemur í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar um tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2017–2022 á þskj. 427 að mikilvægt sé að gerð verði?