Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 521 — 391. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (kaup einstaklings á íbúðarhúsnæði).
Flm.: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Óli Björn Kárason, Hildur Sverrisdóttir, Vilhjálmur Árnason, Teitur Björn Einarsson, Vilhjálmur Bjarnason, Páll Magnússon, Njáll Trausti Friðbertsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Greinargerð.
Markmið frumvarpsins eru að auðvelda fólki að afla sér íbúðarhúsnæðis og auka skilvirkni og flæði á markaði með það. Mikil þörf er á að auðvelda fólki eins og frekast er unnt að eignast íbúðarhúsnæði, einkum við aðstæður á borð við þær sem nú ríkja á húsnæðismarkaði.
Sýnt þykir að stimpilgjald hafi áhrif til hækkunar fasteignaverðs, dragi úr framboði og rýri hlut kaupenda og seljenda. Af framangreindu má ætla að afnám stimpilgjalds við fasteignaviðskipti muni auðvelda verðmyndun á húsnæðismarkaði með tilheyrandi aukningu á framboði sem hefur verið með minnsta móti undanfarin ár.