Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 632  —  448. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um eignir og tekjur landsmanna árið 2016.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
     2.      Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
     3.      Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2016, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
     4.      Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2016 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?


    Ráðuneytið hefur tvisvar svarað framangreindri fyrirspurn um eignir og tekjur landsmanna en þá fyrir tekjuárin 2014 og 2015 (144. þing, 429. mál; 145. þing, 891. mál). Svörin byggjast á álagningu opinberra gjalda fyrir annars vegar gjaldárin 1998–2015 og hins vegar gjaldárin 1998–2016. Álagning opinberra gjalda fyrir gjaldárið 2017 berst ráðuneytinu ekki fyrr en í júní næstkomandi og er því ekki unnt að byggja svarið á eignum og tekjum einstaklinga fyrir tekjuárið 2016 fyrr en þá.