Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 638 — 460. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um gögn um útgjöld til heilbrigðismála á Norðurlöndum.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Til hvaða gagna frá OECD um samanburð á opinberum útgjöldum til heilbrigðismála á Norðurlöndum er vísað á blaðsíðu 81 í þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun 2018–2022 (402. mál) og hvað kemur fram í þeim gögnum?
Skriflegt svar óskast.