Ferill 501. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 700  —  501. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um þróun Gini-stuðulsins.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hvernig þróaðist Gini-stuðullinn á árabilinu 2013–2016 og hvaða áhrif höfðu skattbreytingar á stuðulinn á þessu tímabili?
     2.      Hver hefði þróun Gini-stuðulsins orðið á umræddu árabili ef auðlegðarskattur hefði ekki verið felldur niður?
     3.      Hver eru áætluð áhrif fækkunar skattþrepa 1. janúar 2017 á þróun Gini-stuðulsins?


Skriflegt svar óskast.