Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 728 — 518. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um samninga velferðarráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélög.
Frá Einari Brynjólfssyni.
Hvaða samningar velferðarráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélögin, á málefnasviði ráðherra, voru í gildi 1. apríl 2017, hvaða samningar milli þessara aðila runnu út á tímabilinu 1. janúar 2006 til og með 1. apríl 2017 og eftir hvaða samningum var enn greitt 1. apríl 2017 þótt gildistími þeirra væri liðinn? Óskað er eftir stuttri lýsingu á efni hvers samnings fyrir sig.
Skriflegt svar óskast.