Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 794  —  303. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um Hvalfjarðargöng.



     1.      Hefur ráðherra, í ljósi þess að skilmálar um gerð og rekstur Hvalfjarðarganga gera ráð fyrir því að eignarhald á þeim færist til ríkisins þegar þau hafa verið greidd að fullu og tveir áratugir liðnir frá opnun þeirra, átt viðræður við fulltrúa rekstraraðila vegganganna, Spalar ehf., um yfirtöku ríkisins á göngunum?
    Ekki hafa átt sér stað formlegar viðræður við Spöl vegna yfirfærslunnar en málið hefur verið rætt óformlega á milli aðila.

     2.      Er hafinn undirbúningur að yfirtöku ríkisins á Hvalfjarðargöngum?
    Málið hefur verið til umfjöllunar í ráðuneytinu en ekki hafa verið teknar ákvarðanir enn sem komið er.

     3.      Eru áform um að halda gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum áfram eftir yfirtöku ríkisins á þeim?
    Engar ákvarðanir hafa verið teknar um gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum eftir að þeim hefur verið skilað til ríkisins. Slíkt þarf að ræða með hliðsjón af ríkjandi aðstæðum varðandi fjármögnun samgöngumannvirkja almennt. Þetta atriði er m.a. til umræðu í starfshópi um framkvæmdir á stofnbrautum frá höfuðborgarsvæðinu.

     4.      Eru áform um önnur veggöng undir Hvalfjörð með tilliti til vaxandi umferðar og öryggissjónarmiða og ef svo er, hvenær sér ráðherra fyrir sér að þær framkvæmdir hæfust og hvernig yrðu þær fjármagnaðar?
    Það er ljóst að í náinni framtíð mun þurfa að gera önnur göng undir fjörðinn, vegna öryggissjónarmiða og vaxandi umferðar. Ný göng yrðu samhliða núverandi göngum. Hjá Vegagerðinni er um þessar mundir farið yfir ýmsa tæknilega þætti sem að þessu lúta með tilliti til aukinna krafna til slíkra mannvirkja frá því fyrri göng voru hönnuð og tekin í notkun. Þá er unnið að mati á kostnaði við ný göng. Þróun umferðar á næstu misserum ræður mestu um hvenær hefjast þarf handa við framkvæmdir. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það með hvaða hætti staðið verður að fjármögnun. Þá er rétt að geta þess að ný göng eru ekki á samgönguáætlun.