Ferill 550. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 822  —  550. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um rannsóknir á vændiskaupum.

Frá Iðunni Garðarsdóttur.


     1.      Hvert er viðhorf ráðherra til þess að dregið hefur úr rannsóknum lögreglu á vændiskaupum undanfarin ár vegna skorts á fé og mannafla?
     2.      Hyggst ráðherra tryggja með auknum fjárframlögum að lögregla geti sinnt rannsóknum á vændiskaupum í samræmi við 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940?


Skriflegt svar óskast.