Ferill 449. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 833  —  449. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Bessí Jóhannsdóttur um Sundabraut.


     1.      Hver eru áform um lagningu Sundabrautar?
    Í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2015–2026, sem lögð var fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015–2016, er ekki lagt til að veitt verði fé til Sundabrautar. Þess í stað kemur fram að „leitað verði leiða til að fjármagna Sundabraut í samstarfi við einkaaðila“.
    Sundabraut hefur verið á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar allt frá árinu 1984. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar fyrir árin 2001–2024 er Sundabraut ætlað mikilvægt hlutverk í stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins og hún er í raun forsenda fyrir uppbyggingu á Geldinganesi og síðar á Álfsnesi.
    Í samþykktu aðalskipulagi Reykjavíkurborgar fyrir árin 2010–2030, sem staðfest var í febrúar 2014, er gert ráð fyrir að Sundabraut gæti verið lögð á skipulagstímabilinu. Í skipulaginu er hins vegar hvorki gert ráð fyrir uppbyggingu á Geldinganesi né á Álfsnesi sem neinu nemur.

     2.      Hyggst ráðherra hafa frumkvæði að því að ganga til viðræðna við Reykjavíkurborg um Sundabraut með það að markmiði að ákvarða endanlega útfærslu og legu brautarinnar, vinna að arðsemismati og kostnaðargreiningu og tímasetja framkvæmdina?
    Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa allt frá árinu 1995 lagt mikla vinnu í að rannsaka mögulega kosti á legu Sundabrautar. Því miður hefur ekki náðst sameiginleg niðurstaða um ákveðinn kost. Vegagerðin hefur lagt áherslu á svokallaða innri leið sem liggur af Sæbraut um Kleppsmýrarveg. Reykjavíkurborg hefur hins vegar með samþykkt aðalskipulagsins fyrir árin 2010–2030 hafnað þeirri leið en haldið opinni svokallaðri ytri leið sem liggur af Sæbraut norðan Miklagarðs. Kostnaður við ytri leið er gróft áætlaður um 10 milljörðum kr. hærri en við innri leið. Sá kostnaður skýrist fyrst og fremst af því hve stór hluti Sundahafnar er sunnan þeirrar leiðar. Til að siglingar skipa raskist ekki þarf mjög háar brýr eða aðrar mjög dýrar lausnir, svo sem opnanlegar brýr.
    Arðsemisreikningar hafa verið hluti af rannsóknum borgarinnar og Vegagerðarinnar samtímis því að mögulegir kostir hafa verið skoðaðir. Samkvæmt þeim útreikningum er innri leiðin hagstæðari. Nokkrir fjárfestar hafa leitað upplýsinga hjá Vegagerðinni og ráðuneytinu um Sundabraut með það í huga að leggja brautina gegn endurgreiðslu. Athuganir þessar hafa ekki leitt til frekari samningaviðræðna enn sem komið er.