Ferill 533. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 956  —  533. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um einkavæðingu þeirra skóla sem nú tilheyra Tækniskólanum.



     1.      Hvað hefur Tækniskólinn, eða núverandi og fyrri eigendur hans, greitt íslenska ríkinu fyrir þá skóla sem íslenska ríkið hefur einkavætt og síðan hafa myndað Tækniskólann, áður Fjöltækniskólann?
    Engar greiðslur hafa átt sér stað frá Tækniskólanum fyrir skólana, enda er ríkið eigandi og verður eigandi allra þeirra eigna sem Tækniskólinn hefur tekið við ásamt þeim tækjum og tólum sem bætast við á rekstrartíma Tækniskólans. Við endanleg lok þjónustusamningsins tekur ríkið við skólunum með öllum eignum sem verða fyrir hendi, hafa verið endurnýjaðar og eða verið aflað af Tækniskólanum, sbr. ákvæði þar um í samningi aðila.

     2.      Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnið hafa til Tækniskólans, eða núverandi og fyrri eigenda hans, frá íslenska ríkinu við einkavæðingu á þeim skólum sem nú mynda Tækniskólann, áður Fjöltækniskólann? Hverjar voru þessar eignir?
    Engar eignir runnu inn í Tækniskólann við gerð þjónustusamningsins og þeirra viðauka sem gerðir hafa verið við hann um rekstur skólanna sem nú mynda Tækniskólann. Ríkissjóður er eigandi eignanna og Tækniskólinn rekstraraðili. Tækniskólinn greiðir leigu fyrir húsnæði skólanna sem er í eigu ríkisins og/eða annarra með sama hætti og aðrir framhaldsskólar.

     3.      Hefur íslenska ríkið fengið eignarhlut í Tækniskólanum, eða áður Fjöltækniskólanum, að lokinni einkavæðingu á þeim skólum sem nú mynda Tækniskólann, áður Fjöltækniskólann?
    Nei, íslenska ríkið hefur ekki fengið eignarhlut í Tækniskólanum/Fjöltækniskólanum, enda hafa umræddir opinberir framhaldsskólar ekki verið „einkavæddir“, sbr. svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.