Ferill 385. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 1030 — 385. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta, tolla og gjöld
(samsköttun félaga, takmörkun á frádrætti vaxtagjalda,
leigutekjur, virðisaukaskattur, vörugjald af grindarbílum o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 31. maí.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
1. gr.
a. Í stað „3. mgr.“ í 2. mgr. 5. tölul. kemur: 3.–5. mgr.
b. Orðið „sjómannaafsláttur“ í 7. tölul. fellur brott.
2. gr.
a. Í stað „3. mgr.“ í 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. kemur: 3.–5. mgr.
b. 3. málsl. 2. mgr. fellur brott.
c. 3. mgr. fellur brott.
3. gr.
4. gr.
Útleiga manna á íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði og öðru húsnæði.
a. Tekjurnar stafi af útleigu íbúðarhúsnæðis sem fellur undir húsaleigulög, enda séu hinar útleigðu sérgreindu fasteignir ekki fleiri en tvær. Frá tekjum manns af útleigu íbúðarhúsnæðis, sem fellur undir húsaleigulög, er heimilt að draga leigugjald sem hann greiðir af íbúðarhúsnæði til eigin nota. Frádráttur þessi leyfist eingöngu á móti leigutekjum af íbúðarhúsnæði sem ætlað er til eigin nota en er í útleigu.
b. Útleigan teljist heimagisting samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, hún hafi verið tilkynnt sýslumanni og fengið skráningarnúmer. Þá skal heildarfjárhæð leigutekna viðkomandi af heimagistingu á tekjuárinu aldrei nema hærri fjárhæð en 2.000.000 kr. Sé húsnæðið í útleigu tveggja eða fleiri manna skal við afmörkun heildarfjárhæðarinnar telja tekjur þeirra allra hjá hverjum og einum.
Tekjur af starfsemi sem fellur undir b-lið 1. mgr. skulu skattlagðar samkvæmt ákvæði 1. málsl. 3. mgr. 66. gr. án frádráttar. Nemi heildarfjárhæð leigutekna skv. b-lið 1. mgr. hærri fjárhæð en 2.000.000 kr. eða ef sýslumaður fellir niður skráningu heimagistingar falla allar leigutekjurnar á tekjuárinu undir atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi.
5. gr.
6. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.
7. gr.
8. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
9. gr.
10. gr.
Endurgreiða skal virðisaukaskatt vegna kaupa á vörum og þjónustu hér á landi á grundvelli alþjóðasamninga og tvíhliða samninga sem Ísland er aðili að, frá þeim tíma er viðkomandi samningur hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar. Með sama hætti skal endurgreiða virðisaukaskatt til erlends liðsafla og borgaralegra deilda hans, þ.m.t. Atlantshafsbandalagsins, Samstarfs í þágu friðar, herliðs Bandaríkjanna og annarra aðila sem undanþegnir skulu virðisaukaskatti vegna kaupa á vörum og þjónustu hér á landi samkvæmt alþjóðasamningum, tvíhliða samningum eða sérstökum lögum þar um.
IV. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
V. KAFLI
Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum.
15. gr.
a. H-liður 2. tölul. orðast svo: Grindur með hreyfli og ökumannshúsi og eftir atvikum með viðbættu vöruflutningarými. Með viðbættu vöruflutningarými er átt við vörukassa eða vörupall sem ekki er sambyggður ökumannshúsinu og myndar ekki sjónræna heild með því hvað varðar lögun, lit eða efni.
b. Q-liður 1. tölul. fellur brott.
16. gr.
Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, með síðari breytingum.
17. gr.
a. Í stað „13 kr./kg“ í tollskrárnúmerunum 9207.1001–9207.9000 kemur: 16 kr./kg.
b. Eftirfarandi tollskrárnúmer bætast við viðaukann:
8456.3000 11 kr./kg
8472.9010 16 kr./kg
8539.1000–8539.9000 25 kr./kg
VII. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með síðari breytingum.
18. gr.
Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.
19. gr.
Endurgreiða skal tóbaksgjald á grundvelli alþjóðasamninga og tvíhliða samninga sem Ísland er aðili að, frá þeim tíma er viðkomandi samningur hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar. Með sama hætti skal endurgreiða tóbaksgjald til erlends liðsafla og borgaralegra deilda hans, þ.m.t. Atlantshafsbandalagsins, Samstarfs í þágu friðar, herliðs Bandaríkjanna og annarra aðila sem undanþegnir skulu tóbaksgjaldi samkvæmt alþjóðasamningum, tvíhliða samningum eða sérstökum lögum þar um.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um bifreiðagjald, nr. 39/1988, með síðari breytingum.
20. gr.
Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga nr. 50/ 1988, um virðisaukaskatt, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004, með síðari breytingum.
21. gr.
a. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga nr. 50/ 1988, um virðisaukaskatt, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.
b. Í stað „2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: 3. mgr.
c. Í stað „4. mgr.“ í 5. mgr. kemur: 5. mgr.
22. gr.
X. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009, með síðari breytingum.
23. gr.
Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, með síðari breytingum.
24. gr.
Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um gistináttaskatt, nr. 87/2011, með síðari breytingum.
25. gr.
Endurgreiða skal gistináttaskatt á grundvelli alþjóðasamninga og tvíhliða samninga sem Ísland er aðili að, frá þeim tíma er viðkomandi samningur hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar. Með sama hætti skal endurgreiða gistináttaskatt til erlends liðsafla og borgaralegra deilda hans, þ.m.t. Atlantshafsbandalagsins, Samstarfs í þágu friðar, herliðs Bandaríkjanna og annarra aðila sem undanþegnir skulu gistináttaskatti samkvæmt alþjóðasamningum, tvíhliða samningum eða sérstökum lögum þar um.
26. gr.
1. Ákvæði 1. gr., a-liðar 2. gr., 5., 7., 8., 12.–15. og 17. gr. öðlast þegar gildi.
2. Ákvæði 3. gr. öðlast gildi og kemur til framkvæmda 1. janúar 2018.
3. Ákvæði b- og c-liðar 2. gr. og 6. gr. öðlast gildi 1. janúar 2018 og koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2019.
4. Ákvæði 4. gr. öðlast gildi 1. janúar 2017 og kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2018 nema a-liður 1. mgr. greinarinnar sem öðlast gildi 1. janúar 2018 og kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2019.
5. Ákvæði 9.–11., 16. og 18.–25. gr. öðlast gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 2017.