Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 305 — 218. mál.
Fyrirspurn
til félags- og jafnréttismálaráðherra um sölu fullnustueigna Íbúðalánasjóðs.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Hversu margar fullnustueignir seldi Íbúðalánasjóður árlega 2008–2017, hvar voru þessar eignir og hvert var heildarsöluverð á hverju ári?
2. Hverjir voru kaupendur? Upplýsingar óskast um annars vegar einstaklinga og hins vegar fyrirtæki og eignarhald þeirra.
Skriflegt svar óskast.