Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 353 — 251. mál.
Flutningsmaður.
Tillaga til þingsályktunar
um vistvæn opinber innkaup á matvöru.
Flm.: Þórunn Egilsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að vinna frumvarp þess efnis að ávallt skuli tekið tillit til umhverfissjónarmiða og dýravelferðar við opinber innkaup á matvöru. Frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi fyrir maíbyrjun 2019.
Greinargerð.
Íslensk lög um opinber innkaup, nr. 120/2016, byggjast á evrópskri tilskipun 2014/24/ESB um opinber innkaup. Í tilskipuninni er viðurkennt að nýta megi opinber innkaup til að vinna að umhverfisvernd og velferð dýra. Lög um opinber innkaup beinast þó einkum að því að tryggja að innkaup séu hagkvæm og gera opinberum aðilum almennt aðeins heimilt, en ekki skylt, að taka tillit til umhverfisverndar við innkaup. Með tillögu þessari er lagt til grundvallar að ávallt verði tekið tillit til umhverfisverndar og dýravelferðar við opinber innkaup á matvöru. Ríki og sveitarfélög leggi þannig þungt lóð á vogarskálar vistvænnar matvælaframleiðslu.