Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 373 — 271. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um minnkun plastpokanotkunar.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
1. Hver er staða þeirra verkefna sem skilgreind eru í aðgerðaáætlun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að draga úr notkun plastpoka á árunum 2016–2018?
2. Hvenær er áformað að banna notkun plastpoka á Íslandi?