Ferill 407. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 574 — 407. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um lög um félagasamtök til almannaheilla.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
1. Telur ráðherra þörf á breytingum á lagaumhverfi félagasamtaka til almannaheilla til að skjóta traustari stoðum undir starfsemi þeirra og ef svo er, hyggst ráðherra leggja fram frumvarp til slíkra breytinga á þessu ári?
2. Hyggst ráðherra leggja fram frumvarp til heildarlaga um félagasamtök til almannaheilla á kjörtímabilinu?